Velkomin á bloggið mitt
Vinir
Könnun
Er Andrés önd bestur(af teiknimyndapersónum)?









09.02.2009 16:34:02 / hrefnajoke

??? Björnsson eða ??? Björnsdóttir

 SYSKIN!!!!!Ég fæ það eftir hálft ár. Það á að fæðast 20. ágúst en getur fæðst í byrjun september. Nú fer ég að hugsa; er þetta stelpa eða er þetta stákur... en ef barnið verður strákur þá vil ég að þið skrifið nöfn í gestabókina... líka ef þetta er stelpa. Ég bara get ekki beðið eftir nýja beibíinu. Munið að ef barnið á að heita...uuu... (eitthvað) (kanski Kaldalóns) Björnsson (eða dóttir).

» 10 hafa sagt sína skoðun

02.02.2009 16:16:48 / hrefnajoke

Gáta...

Hvaða tré er með 100. greinar, á hverri grein eru 12. kvistar, á hverjum kvisti eru 4 hreiður, í hverju hreiðri eru 7. ungar og hver ungi á 1. nafnið hvert. Hvað heitir tréð?

Hani verpti þríhyrntu eggi. Í hvaða átt valt eggið?

Hvað er mökunarkall ljósku?

-Ohhhh,  ég er svo full!!!

Kv. Hrefnajoke;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.11.2008 16:39:21 / hrefnajoke

Ljóðið sem ég gerði:

Mamma og pabbi

Mín móðir mig fæddi,

 minn faðir mig gætti. 

Saman þau klæddu,

og ólu mig upp.

Þau kenndu mér margt

og í skólann mig sendu.

Þó litu mér stundum sem svart,

samt elska þau mig daga og nætur.

                          Hrefnajoke!8)!


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.08.2008 14:09:06 / hrefnajoke

Afsakið...

hvað ég hef  verið  löt  að  blogga.:$

Kv.Hrefnajoke

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.04.2008 19:10:36 / hrefnajoke

Þýðíng broskalla:

:)=glaður:o=hissa:lol:=hræddur, skammast sín eða þorir ekki að viðurkenna eittvað:|=hálf dapur:s=dapur og glaður8)=eitthvað fínt:d=ágætlega glaður:(=leiður;)sammþigtur8|=hissa:!:=viðvörunarmerki:cry:=mjög dapur:evil:=skrattans reiður:$=ringlaður:klikk:=skrattans glaður        :whut:=óleist ráðgáta:haha:=mjög glaður:p=ágnægður:^)=að roðna:frown:=hugsa

Bara upp á smá grín.

Kv.Hrefnajoke;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 21:19:08 / hrefnajoke

Fullur magi ;)

Í dag fór ég á Serrano, sem er veitingastaður. Ég fékk 4 taccoskeljar og með aukafyllingum. Og Ari  kom ekki með. Bloggið hans er ariprakkari.blogcentral.is. En nóg um hangs. Ég át svona eins og kúfullur diskur. Ég bara verð að monta mig smá:lol: eða eiga þeir að vera 2.:lol::lol:!

Kv. Hrefnajoke;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 21:15:05 / hrefnajoke

Ari líka fá blogg

Ari var að fá blogg. Þegar hann var ekki með blogg var hann övundsjúkur. hann var stöðugt að nöldra: "Ég vil líka fá blogg." Ég sagði bara á móti: "Þú ert svo latur að skrifa að þú getur ekki átt blogg." Nú á hann blogg og hann var að segja: Ohh, mig leiðist að skrifa(blogga)!

Kv. Hrefna(joke);)












» 0 hafa sagt sína skoðun

31.03.2008 19:23:46 / hrefnajoke

Joke blogg

Joke blogg þýðir raunar að ég vilji blogga en ég.......
A) nenni því ekki.
B) ætla að blogga....seinna.

Lausnlega þýtt: Æ, þetta erof flókið. Æi, ég veit ekki af hverju ég er að blogga þetta:$!

.....Kv Hrefna(joke);)


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.03.2008 19:50:43 / hrefnajoke

Skíðaferð

18.mars fór ég í skíðaferð með Ara, mömmu, Huldu(vinkona mömmu) og Hrafn Inga(sonur Huldu). Síðast þegar ég fór á skíði var þegar ég var 2gja ára. OG ÞÁ FÓR ÉG Í KOTNÍS UNDIR MANN!:$ Við fórum og leigðum skíði og vorum bara í barnalyftuni. Næst förum við í stóru lyftuna. Ég var dauðhrædd um að snúa upp á öklann eins og hann Völundur. Ég skil það vel að það var vont. Ég gerði það næstum slálf. Og skíðaferðin var cool.

Kv. Hrefna(joke)


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 20:46:23 / hrefnajoke

Kæru gestir:

Þeir sem koma inn í bloggsíðuna mína og hafa aldrei skrifað í gestabókina  mína eru vinsamlegast beðnir um að gera það strax........:)


kv. stjórinn (Hrefna(joke)).;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 15:31:08 / hrefnajoke

Afmæli í skólanum

Í frjálsa tímanum var haldið afmæli í skólanum og afmælisbarnið var Cheila.Við  horfðum  á  mynd sem heitir "Ratatulie"  sem er um mús, mjög greinda mús og mig hlakkar til að sjá frammhaldið.Ég veit að við  sjáum það einhvern tíman.Við kláruðum ekki myndina þó að hún var mjög skemmtileg:(.Cheila fékk eins mikið af pökkum og við af poppi og snakki8). Kakan var ekki óholl út af því að hún er brauðterta! mér er illt í maganum af því að ég át yfir mig! En skrítnast fanst ég að afmælið var í skólanum.

Eigandi bloggsins: Hrefna (joke);)

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 19:32:15 / hrefnajoke

Fyrsta bloggið (og allt um það)

Hæhæhæ og velkomin á fyrsta bloggið mitt :haha: (ég veit að þetta er ekki góð lýsíng).Mig langar að sjá að fleiri skoði bloggið mitt. Gott hjá ykkur, Lóa, Agnes, Kristín Ýr og Dagbjört, þið gáfuð mömmu minni hugmyndina á að gera bloggið.:)

Kv Hrefna (joke)

 

P.S. ekki segja mörgum frá blogginu mínu.

Annað P.S. Svona er fyrsta bloggið mitt.


» 4 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill